Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 17. júlí 2021 13:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kom ekkert annað til greina en Arsenal hjá White
Mynd: Getty Images
Ben White hefur skrifað undir fimm ára samning við Arsenal. Kaupverðið er talið vera 50 milljónir punda.

White mun fara í læknisskoðun hjá Arsenal í lok júlí þegar hann lýkur sumarfríi eftir að hafa verið með enska landsliðinu á EM.

Hann segir að eftir að Arsenal hafði samband hafi ekkert annað komið til greina en að ganga til liðs við Lundúnarliðið. Everton hafði einnig mikinn áhuga á leikmanninum.

Þessi 23 ára gamli miðvörður kemur frá Brighton þar sem hann var frá árinu 2014. Hann lék sitt fyrsta tímabil með liðinu á síðustu leiktíð en hann var á láni hjá Leeds á þar síðustu leiktíð í Championship deildinni.
Athugasemdir
banner
banner