Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. júlí 2021 06:00
Victor Pálsson
Maldini staðfestir komu Giroud - Vilja meiri reynslu
Mynd: Getty Images
Paulo Maldini, yfirmaður knattspyrnumála AC Milan, hefur staðfest það að Olivier Giroud sé á leið til félagsins.

Giroud hefur sterklega verið orðaður við Milan síðustu vikur en hann er samningsbundinn Chelsea.

Frakkinn var þó í varahlutverki á síðustu leiktíð og mun þessi 34 ára gamli leikmaður nú reyna fyrir sér í Serie A.

„Giroud ætti að koma hingað á morgun," sagði Maldini í samtali við DAZN.

„Olivier er sigurvegari og er nýbúinn að vinna Meistaradeildina. Hann er mjög áreiðanlegur leikmaður."

„Við erum að leita að reynslumiklum leikmönnum. Við erum mð yngsta liðið í Serie A."
Athugasemdir
banner
banner