Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. júlí 2021 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Svíþjóð: Bjarna Mark skipt inná og tekinn aftur af velli
Mynd: Þorgrímur Þráinsson
GAIS 0-2 Brage
0-1 Pllana ('12, víti)
0-2 Dantas ('77)

Brage, lið Bjarna Mark Antonssonar vann 2-0 sigur á GAIS á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Bjarni byrjaði á varamannabekknum en hans menn komust yfir á 12. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Bjarni kom inná á 74. mínútu og þremur mínútum síðar var staðan orðin 2-0.

Bjarna var síðan kippt af velli á 94. mínútu, en ekki er vitað hvers vegna.

Brage er í 12. sæti deildarinnar, einu sæti fyrir ofan fallsæti með 12 stig eftir 12 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner