Ferran Torres, leikmaður Manchester City, hefur tjáð sig um þær sögusagnir að Antoine Griezmann sé á leið til enska liðsins.
Griezmann er þrítugur sóknarmaður en hann hefur skorað 220 mörk í 558 leikjum á ferlinum en hefur ekki náð að sýna sitt besta hjá Barcelona.
Barcelona gæti reynt að losa hann í sumarglugganum og er City eitt af þeim liðum sem eru sögð áhugasöm.
Torres segir að Griezmann sé frábær leikmaður en hefur ekki hugmynd um hvort hann sé á leið til félagsins.
„Hann er frábær leikmaður. Augljóslega þá er hann leikmaður Barcelona og við sjáum hvað setur," sagði Torres.
„Ég veit ekki hvort Pep Guardiola hafi rætt við hann. City er eitt besta lið heims og vilja bestu leikmennina til að vinna allt saman."
„Ef hann kemur þá gott mál en ef ekki þá höldum við áfram."
Athugasemdir