Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 17. júlí 2021 14:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Varane að ná samkomulagi við United
Mynd: EPA
Raphael Varane varnarmaður Real Madrid hefur verið orðaður við Manchester United að undanförnu.

Nú er talið að það sé að nást samkomulag milli Varane og United en þá á enska liðið bara eftir að ná samkomulagi við Real Madrid um verð.

Stjórnarmenn United eru bjartsýnir en varasamir um að ná því fljótlega eftir að samningar eru í höfn.

Varane er gríðarlega öflugur varnarmaður og á eflaust eftir að gefa United mikið sem stefna væntanlega á að gera athlögu að enska deildartitlinum á næstu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner