Chelsea lagði Club America frá Mexíkó í æfingaleik í Bandaríkjunum í nótt.
Það var markalaust í hálfleik en Thomas Tuchel gerði ellefu breytingar í upphafi síðari hálfleiks. Þegar 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum kom Timo Werner Chelsea yfir.
Aðeins fimm mínútum síðar varð Reece James fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Mason Mount tryggði hins vegar Chelsea sigurinn með laglegu marki þegar skammt var til leiksloka.
Aston Villa og Leeds mættust í Ástralíu í nótt. Víti voru í aðalhlutverki þar. Eftir rúmlega 20 mínútna leik fengu VIlla menn vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd Tyler Adams.
Philippe Coutinho steig á punktinn en Ilan Meslier varði frá honum, Coutinho fylgdi á eftir en Meslier varði aftur. Villa fékk hins vegar aðra vítaspyrnu eftir rúmlega klukkutíma leik. Ings steig á punktinn og skoraði og tryggði Villa sigurinn.
Hér fyrir neðan má sjá vörslurnar hjá Meslier og markið frá Mount
Stop that, @masonmount_10! 🤤 #BluesInTheUSA pic.twitter.com/h8rzelEPIT
— Chelsea FC (@ChelseaFC) July 17, 2022