Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 17. júlí 2022 10:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arsenal setur verðmiða á Leno
Mynd: Getty Images
Bernd Leno er að öllum líkindum á leið frá Arsenal í sumar.

Hann missti sætið sitt í byrjunarliðinu á síðustu leiktíð en Aaron Ramsdale er orðinn aðalmarkvörður liðsins.

Þá keypti Arsenal Matt Turner sem verður að öllum líkindum að berjast við Aaron Ramsdale um sæti i liðinu á næstu leiktíð.

Enskir miðlar segja að Arsenal hafi neitað 10 milljón punda tilboði Fulham í Leno en liðið sé tilbúið að selja hann ef það kemur tilboð uppá 15 milljónir punda.

Ásamt Turner hefur Arsenal fengið Fabio Vieira frá Porto, Gabriel Jesus frá Manchester City og Marquinhos frá Sao Paolo.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner