Manchester United hefur staðfest að félagið hafi náð samkomulagi við Ajax og Lisandro Martinez um að leikmaðurinn gangi til liðs við enska félagið.
Kaupverðið er talið vera 65 milljónir evra.
Martinez lék undir stjórn Ten Hag hjá Ajax frá 2019. Þeir unnu deildina þrisvar og bikarinn tvisvar með Ajax á þeim tíma.
Nú er bara beðið eftir því að atvinnuleyfið og smáatriði í samningunum séu í höfn.
Athugasemdir