Portúgalski þjálfarinn Jose Mourinho frumsýndi nýtt húðflúr á æfingu liðsins í dag en hann hefur látið húðflúra alla þrjá Evrópubikarana á öxlina á sér.
Mourinho vann Sambandsdeild Evrópu með Roma á síðustu leiktíð og varð þar með fyrsti þjálfarinn til að vinna þá keppni.
Hann er þá eini þjálfarinn í heiminum sem hefur unnið allar þrjár Evrópukeppnirnar, en hann vann Meistaradeild Evrópu með Porto og Inter og þá Evrópudeildina með Manchester United.
Í tilefni af því ákvað hann að láta flúra alla þrjá Evrópubikarana á öxlina á sér og sýndi hann flúrið í dag.
Mynd af því má sjá hér fyrir neðan.
Jose Mourinho has a new tattoo showing off the three different European trophies he has won.
— Squawka News (@SquawkaNews) July 17, 2022
(Image via JoseMourinho on Instagram) pic.twitter.com/tSz2QrlHmX
Athugasemdir