Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 17. júlí 2022 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rooney vill fá Phil Jones frá Manchester United
Mynd: EPA
Wayne Rooney fyrrum leikmaður Manchester United hætti sem stjóri Derby County og er tekinn við DC United í Bandaríkjunum.

Rooney lék með DC United frá 2018-2020.

Liðið er á botni Austurdeildarinnar og er Rooney að leita af styrkingu fyrir hópinn. Samkvæmt heimildum enskra fjölmiðla leitar hann til gömlu félagana í United.

Varnarmaðurinn Phil Jones er sagður vera á óskalista Rooney en Jones hefur lítið spilað undanfarin ár vegna þrálátra meiðsla. Hann hefur aðeins leikið 13 leiki á síðustu þremur árum.

Jones og Rooney léku saman hjá United á árunum 2011-2017.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner