Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   sun 17. júlí 2022 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tuchel hefur engan áhuga á því að selja Broja
Mynd: EPA
Hinn tvítugi Armando Broja þótti standa sig vel með Southampton í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Þessi landsliðsmaður Albaníu skoraði 9 mörk í 38 leikjum. Hann var á láni frá Chelsea.

Hann hefur snúið aftur til Chelsea en Sky Sports greindi frá því á dögunum að est Ham hafi boðið í leikmanninn. Thomas Tuchel stjóri Chelsea er ekki tilbúinn til að selja hann.

„Armando er leikmaður Chelsea og eins og staðan er núna höfum við engan áhuga á því að selja hann. Hann er hér til að sanna sig eftir að hann hafi verið á láni hjá Southampton," sagði Tuchel.

„Það er gott að það sé áhugi á honum, það sýnir okkur að hann er hæfileikaríkur og á framtíðina fyrir sér. Hann er í þeirri stöðu að geta heillað okkur og orðið leikmaður Chelsea."



Athugasemdir
banner
banner
banner