fös 17. ágúst 2018 18:38
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Stjörnunnar og Breiðabliks: Harpa á sínum stað
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan og Breiðablik eigast við í úrslitum MJólkurbikars kvenna klukkan 19:15 en leikurinn fer að sjálfsögðu fram á Laugardalsvelli, þjóðarleikvangi okkar.

Stjarnan hefur unnið bikarinn þrisvar sinnum en Breiðablik hefur hampað bikarnum ellefu sinnum, síðast árið 2016.

Stjarnan lék til úrslita á síðasta ári en tapaði fyrir ÍBV, 3-2, í mögnuðum leik.

Hér fyrir neðan má sjá byrjunarliðin.

Stjarnan:

1. Berglind Hrund Jónasdóttir (m)
6. Lára Kristín Pedersen
7. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (f)
8. Sigrún Ella Einarsdóttir
9. Telma Hjaltalín Þrastardóttir
10. Anna María Baldursdóttir
16. María Eva Eyjólfsdóttir
17. Megan Lea Dunnigan
26. Harpa Þorsteinsdóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
30. Katrín Ásbjörnsdóttir

Breiðablik:

1. Sonný Lára Þráinsdóttir (m)
7. Agla María Albertsdóttir
8. Heiðdís Lillýardóttir
9. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
10. Berglind Björg Þorvaldsdóttir
11. Fjolla Shala
13. Ásta Eir Árnadóttir
16. Alexandra Jóhannsdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
21. Hildur Antonsdóttir
28. Guðrún Arnardóttir
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner