Sunderland 0 - 2 Sheffield Wednesday
0-1 Marco Matias ('29)
0-2 Adam Reach ('79)
0-1 Marco Matias ('29)
0-2 Adam Reach ('79)
Sunderland tapaði gegn Sheffield Wednesday þegar liðin mættust í síðasta leik 1. umferð Deildabikarsins á Englandi.
Marco Matias kom Sheffield 1-0 yfir á 29. mínútu en annað mark leiksins gerði Adam Reach fyrir gestina á 79. mínútu. Lokatölur 2-0 fyrir gestina frá Sheffield.
Sunderland er úr leik, en liðið hefur ekki fagnað góðu gengi síðustu tvö árin. Eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni féll liðið beinustu leið niður úr Championship-deildinni á síðasta tímabili. Sunderland hefur byrjað á einum sigri og einu jafntefli í C-deildinni.
Lið úr ensku úrvalsdeildinni koma inn í næstu umferð Deildabikarsins.
Athugasemdir