Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Þór/KA í Pepsi-deild kvenna, er spenntur fyrir 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en liðið mætir stórliði Wolfsburg.
Dregið var í 32-liða úrslitin í dag en Þór/KA fékk Wolfsburg en Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, leikur með liðinu.
Wolfsburg hefur verið eitt stærsta liðið í heiminum síðustu ár og hefur fjórum sinnum komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og unnið tvisvar.
„Mér líst mjög vel á það. Það er ótrúlega skemmtilegt og spennandi verkefni, en ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég kosið aðeins veikari andstæðing í þessari umferð og fara auðvitað lengri en við ætlum okkur upp úr þessari viðureign og leggja Wolfsburg," sagði Donni.
„Það kemur í ljós hvað gerist. Maður verður að vera hugrakkur í því sem gerir. Það eiga allir möguleika á öllum fótboltaleikjum. Íslenska landsliðið vann þýska landsliðið á þeirra heimavelli, við erum með flott og skipulagt lið. Þær eru með annað besta liðið í heiminum og við gerum okkur grein fyrir því að þetta verður erfitt verkefni."
„Það þýðir ekkert að leggjast niður og grenja. Það verður að standa upp og berjast á móti og gera það sem við gerðum mjög vel gegn Ajax, mæta í stríð og vinna þá."
Hann er þá ánægður með að fá Söru Björk heim og segir að liðið taki vel á móti henni.
„Hún er frábær. Hún er að mínu mati einn af fimm bestu miðjumönnum í heiminum ef ekki hærra. Það er ótrúlega gaman að fá landsliðsfyrirliðann á okkar heimavöll og fara svo að heimsækja þær á þeirra heimavöll. Við hlökkum mjög mikið til að fá hana í heimsókn og tökum vel á móti henni og hennar liðsfélögum og svo verður stríð þar á milli," sagði hann í lokin.
Athugasemdir