Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fös 17. ágúst 2018 19:37
Rögnvaldur Már Helgason
Donni: Við vinnum þetta mót
Þór/KA gjörsigraði FH í Þorpinu
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Já, ég er mjög ánægður með sigurinn og ánægður með að bæta markatöluna ennþá betur. Við vorum með bestu markatöluna fyrir leikinn og erum í ennþá betri málum núna. Það gæti skipt sköpum í lokin," sagði þjálfari Þór/ KA, Halldór Jón Sigurðsson eða Donni, eftir 9-1 sigur á FH í kvöld. Hann var þó ekki sáttur með að liðið skildi fá á sig mark rétt í lokin en hrósaði FH liðinu samt sem áður.

Lestu um leikinn: Þór/KA 9 -  1 FH

„Ég var grautfúll, við viljum ekkert fá á okkur mörk og algjör óþarfi að fá á sig mark þegar við erum að vinna 9-0, í guðanna bænum. En kredit samt á FH, þær héldu áfram og skoruðu mark. Þær sköpuðu sér góðar leikstöður í seinnihálfleik og í fyrri hálfleik fannst mér þær frískar, eiginlega bara góðar, og settu á okkar góða pressu og hefðu getað skorað á okkur þar."

„Við vinnum þetta mót, við ætlum að vinna það og það er ekkert sérlega flókið. Við ætlum að vinna leiki sem eftir eru og þá verðum við meistarar og þurfum ekki að treysta á einn né neinn í því, bara okkur sjálf," sagði Donni eftir leik. Sjá má allt viðtalið hér að ofan.
Athugasemdir
banner