Heldur samt í vonina um að FH haldi sér uppi
„Ég bjóst ekki við þessu eftir góðan fyrri hálfleik, þó svo að þær hafi kannski legið aðeins meira á okkur þá voru þær ekki að fá mikil færi og við áttum skotfæri og hitt og þetta, en ég var frekar svekktur með að vera undir í hálfleik. Við ætluðum að reyna að herja á þær í seinni hálfleik og skora, koma okkur inn í leikinn en fáum á okkur mark eftir hornspyrnu á fyrstu eða annarri mínútu. Stuttu síðar þurftum við að gera breytingar á liðinu vegna meiðsla og við missum hausinn og taktinn," sagði Orri Þórðarson, þjálfari FH, eftir stórtap gegn Þór/KA í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór/KA 9 - 1 FH
FH er neðst í deildinni og þarf kraftaverk til að halda sér uppi, sérstaklega þar sem liðið á eftir að spila við fleiri lið sem eru við toppinn. Orri heldur í vonina.
„Já að sjálfsögðu, auðvitað gerum við það. Líkurnar eru ekki með okkur en á meðan það er von, ég held einhvern veginn fyrir alla leiki að ég sé að fara að vinna þá. Það verður þannig áfram." Allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir