Tveir leikir fóru fram í 1. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld en Levante lagði Real Betis örugglega, 3-0, á meðan Girona og Valladolid gerðu markalaust jafntefli.
Levante byrjar vel í spænsku deildinni en liðið skoraði þrjú gegn Real Betis. Roger Marti kom Levante yfir á 38. mínútu áður en Jose Luis Morales bætti við öðru á 54. mínútu. Hann skoraði svo annað mark undir lok leiks og 3-0 sigur staðreynd.
Girona og Valladolid gerðu á meðan markalaus jafntefli..
Úrslit og markaskorarar:
Betis 0 - 3 Levante
0-1 Roger Marti ('38 )
0-2 Jose Luis Morales ('54 )
0-3 Jose Luis Morales ('90 )
Girona 0 - 0 Valladolid
Athugasemdir