Þór/KA mætir þýsku meisturunum í Wolfsburg í 32-liða úrslitum Meistaradeildar kvenna en dregið var í dag.
Íslenska landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir spilar með Wolfsburg.
Wolfsburg fór í úrslit í Meistaradeildinni á síðasta tímabili en liðið tapaði þar gegn Lyon.
Sara meiddist illa í úrslitaleiknum en er að nálgast endurkomu.
Fyrri leikurinn fer fram á Þórsvelli 12 eða 13. september og sá síðari 26 eða 27. september í Þýskalandi.
Velkomin á Þórsvöll @sarabjork18 👊🏻 https://t.co/8VrWFm6Blx
— Arna Sif (@SifArna) August 17, 2018
Athugasemdir