Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 17. ágúst 2022 20:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arteta ber Martinelli saman við Suarez
Gabriel Martinelli
Gabriel Martinelli
Mynd: EPA

Gabriel Martinelli leikmaður Arsenal hefur byrjað tímabilið vel en þessi brasilíski sóknarmaður er með tvö mörk í fyrstu tveimur leikjunum.


Hinn 21 árs gamli Martinelli lék sinn fyrsta landsleik fyrir þjóð sína í mars síðastliðnum en hann vonast til að fá sæti í hópnum fyrir HM í Katar í vetur.

Samkvæmt Rio Ferdinand fyrrum varnarmanni Manchester United hefur Arteta áður líkt Martinelli við Luis Suarez fyrrum sóknarmanni Liverpool og Barcelona.

„Ef hann helst heill, eins og ég hef sagt áður sagði Arteta við mig að hann væri möguelga næsti Suarez," sagði Ferdinand.


Athugasemdir
banner
banner