Gareth Bale leikmaður Real Madrid skoraði magnað mark í úrslitaleik Meistaradeildarinnar nú í vor þegar Real Madrid vann Meistaradeildina þriðja árið í röð.
Bale kom Real Madrid yfir með, 2-1 með hjólhestaspyrnu eftir sendingu frá Marcelo, en nú á dögunum gaf UEFA út lista yfir bestu mörk tímabilsins og mark Bale var ekki á þeim lista.
„Ég veit ekki hver var í þessari dómnefnd en það þarf að reka þau!," grínaðist Bale.
Mark Cristiano Ronaldo gegn Juventus í 8-liða úrslitunum var valið það besta af dómnefndinni en Bale vildi ekki tjá sig um það hvort hans mark hefði verið betra.
Í öðru sæti var mark Dimitri Payet sem hann skoraði í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar gegn Leipzig. Eva Navarro leikmaður u-17 ára liðs Spánar var í þriðja sæti en hún skoraði glæsilegt mark í úrslitaleik U-17 Evrópumótsins.
Hér að neðan má sjá mark Bale í leiknum. Ansi gott. Þar fyrir neðan er markið sem Ronaldo skoraði gegn Juventus.
Gareth Bale just did that, in the Champions League Final. Wow. pic.twitter.com/ioHHIKEq1U
— The Man Utd Way (@TheManUtdWay) May 26, 2018
Athugasemdir