Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 17. september 2018 14:32
Elvar Geir Magnússon
Endurtekni leikur Hugins og Völsungs settur á miðvikudag
Völsungar fagna marki.
Völsungar fagna marki.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Vegna niðurstöðu áfrýjunardómstóls KSÍ í tengslum við leik Hugins og Völsungs 17. ágúst sl. í 2. deild karla hefur mótanefnd KSÍ ákveðið að nýr leikur fari fram miðvikudaginn 19. september kl. 16.30 á Seyðisfjarðarvelli.

Áfrýjunardómstóll KSÍ ógildi viðureign liðanna í ágúst. Ástæðan eru mistök við skýrslugerð eftir dómaramistök.

Það að leikurinn verður endurtekinn gefur Völsungi líflínu á að komast upp í Inkasso-deildina. Ef liðið vinnur endurtekinn leik sinn við Huginn fer liðið upp í 40 stig, tveimur stigum frá Gróttu og Aftureldingu sem eru í tveimur efstu sætunum. Völsungur spilar við Tindastól á útivelli í lokaumferðinni, en ljóst er að Afturelding og Grótta eru í kjörstöðu.

Af hverju verður leikurinn endurtekinn?
Völsungur tapaði fyrir Hugin 17. ágúst síðastliðinn. Í leiknum gaf Helgi Ólafsson, dómari leiksins, leikmanni Völsungs gula spjaldið og hélt hann að leikmaðurinn væri þegar kominn með gult og gaf því ranglega rauða spjaldið. Helgi fattaði mistökin eftirá og skráði spjaldið ekki í skýrslu.

Völsungur kærði framkvæmd leiksins þar sem félagið taldi að skýrslan hafi verið fölsuð.

Völsungur gaf frá sér tvær yfirlýsingar eftir leikinn. Til að lesa þá fyrri smelltu hér, til að lesa þá seinni smelltu hér. Í seinni yfirlýsingunni segist Völsungur hafa fengið hótanir frá KSÍ.

Sjá einnig:
Yfirlýsing Hugins - Hafnar niðurstöðu áfrýjunardómstóls
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner