Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 17. september 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Southampton og Brighton ljúka umferðinni
Mynd: Getty Images
Síðasti leikur fimmtu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar fer fram í kvöld þegar Southampton tekur á móti Brighton.

Bæði lið eru með fjögur stig eftir fjóra leiki og því hægt að gera ráð fyrir gífurlega mikilli baráttu um hvern bolta.

Meiðslalistar liðanna eru stuttir þar sem aðeins einn leikmaður Southampton og þrír hjá Brighton eru tæpir fyrir leikinn.

Shane Long verður líklega ekki með Southampton á meðan Jose Izquierdo, Florin Andone og Bruno Saltor eru ólíklegir í liði Brighton.

Eini sigur Southampton kom á útivelli gegn Crystal Palace í síðustu umferð fyrir landsleikjahlé á meðan Brighton gerði sér lítið fyrir og lagði Manchester United að velli í annarri umferð.

Leikur kvöldsins:
19:00 Southampton - Brighton (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner