Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 17. september 2018 20:42
Arnar Helgi Magnússon
Ítalía: Óvæntur sigur Spal á Atalanta - í 2. sæti deildarinnar
Tvenna gegn gömlu félögunum.
Tvenna gegn gömlu félögunum.
Mynd: Getty Images
Spal 2 - 0 Atalanta
1-0 Andrea Petagna ('50 )
2-0 Andrea Petagna ('56 )

Einn leikur fór fram í Serie - A á Ítalíu í kvöld en þar mættust Spal og Atalanta.

Markalaust var í hálfleik en fljótlega í síðari hálfleik skoraði Andrea Petagna fyrir Spal. Petagna var ekki búin að syngja sitt síðasta í leiknum en hann var aftur á ferðinni sex mínútum síðar og jók þar með forystu Spal. Petagna er fyrrum leikmaður Atalanta og hann reyndist gömlu félögunum erfiður í kvöld.

Atalanta náðu ekki að setja mark og niðurstaðan því góður sigur fyrir heimamenn, 2-0.

Spal, sem endaði síðasta tímabil í 17. sæti hefur heldur betur byrjað af krafti og situr nú í 2. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Juventus.

Atalanta situr í 14. sæti með fjögur stig eftir jafnmarga leiki.
Athugasemdir
banner