Frank Lampard, stjóri Derby, gæti átt von á sekt eftir að hafa verið rekinn upp í stúku í 1-0 tapi gegn Rotherham í ensku Championship deildinni um helgina.
Lampard var rekinn upp í stúku fyrir að mótmæla dómi í síðari hálflei í leiknum á laugardaginn.
Í dag fékk hann síðan ákæru frá enska knattspyrnusambandinu fyrir hegðun sína.
Reglur enska sambandsins þýða að Lampard sleppur væntanlega við leikbann en fær sekt. Annað brot eða alvarlegra brot hjá stjórum getur orðið til þess að þeir fái leikbann.
Lampard er í sínu fyrsta stjórastarfi en Derby er í augnablikinu í 7. sæti í ensku Championship deildinni.
Athugasemdir