„Alveg sammála því þær voru bara fínar, meðan við þennan leik hjá þeim þá skil ég ekki að þær séu fallnar, mjög svekkjandi að sjá þessar ungu og spræku stelpur í FH vera að fara spila í Inkasso á næsta ári," sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 4-1 sigur á FH í Kaplakrika í kvöld.
Ólafur var mjög sáttur með karakter sinna stelpna í kvöld, en eftir að hafa lent 1-0 undir svöruðu Stjörnustúlkur með fjórum mörkum.
„Það sýnir bara karakter eins og þú segir og svo gæðin í liðinu að jafna strax og svo skora aftur og vera yfir í hálfleik, og skora svo tvö í seinni ég held að það sýni bara karakter og gæði í liðinu að klára þetta 4-1, þrátt fyrir að spila ekki besta leikin okkar, það er það sem góð lið gera."
Úrslitin þýða að Stjarnan endar í þriðja sætinu.
„Bæði og, það fer eftir frá hvaða punktum við tökum þetta, auðvitað viljum við vera í toppbaráttunni og getum það og erum með leikmenn í það hinsvegar var ákveðið að þegar við fórum í vegferðina í haust eftir langt tímabil í fyrra að spara peninga," sagði Ólafur Þór að lokum.
Athugasemdir