Ural 1 - 1 Rostov
1-0 Varazdat Haroyan ('47 )
1-1 Aleksey Ionov ('49 )
1-0 Varazdat Haroyan ('47 )
1-1 Aleksey Ionov ('49 )
Rostov gerði 1-1 jafntefli á útivelli gegn Ural í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.
Íslensku landsliðsmennirnir Ragnar Sigurðsson, Sverrir Ingi Ingason og Björn Bergmann Sigurðarson voru allir í byrjunarliði Rostov.
Björn Bergmann var tekinn af velli á 83. mínútu en hann virtist meiddur.
Viðar Örn Kjartansson fékk þó ekki að leysa Björn af hólmi en hann var ónotaður varamaður í dag. Viðar kom til Rostov frá Maccabi Tel Aviv í lok síðasta mánaðar.
Athugasemdir