Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 17. september 2020 15:36
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið FH og Víkings: Sölvi Geir á bekknum - Hörður Ingi snýr aftur
Sölvi Geir Ottesen verður á bekknum í dag en Steven Lennon byrjar að venju hjá FH.
Sölvi Geir Ottesen verður á bekknum í dag en Steven Lennon byrjar að venju hjá FH.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Halldór Jón Sigurður Þórðarson byrjar hjá Víkingum.
Halldór Jón Sigurður Þórðarson byrjar hjá Víkingum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH og Víkingur mætast í Pepsi Max-deild karla klukkan 16:30 í dag. Leikurinn hefst svo snemma vegna birtuskilyrða enda farið að hausta og dimmir fyrr á kvöldin.

Smelltu hér til að fara í textalýsinguna

FH vann Breiðablik 3 - 1 á sunnudaginn og frá þeim leik gera Eiður Smári Guðjohnsen og Logi Ólafsson þjálfarar liðsins eina breytingu. Hörður Ingi Gunnarsson kemur til baka úr leikbanni og Hjörtur Logi Valgarðsson fer á bekkinn. Jónatan Ingi Jónsson er enn að glíma við eftirköst höfuðhöggs og er ekki í hóp.

Víkingur tapaði 2 - 0 gegn Val á sunnudaginn. Arnar Gunnlaugsson þjálfari liðsins gerir tvær breytingar á liði sínu frá þeim leik. Sölvi Geir Ottesen fyrirliði sest á bekkinn og Halldór Smári Sigurðarson tekur við bandinu. Auk Sölva er Davíð Örn Atlason ekki með en þeir Dofri Snorrason og Halldór Jón Sigurður Þórðarson koma inn í byrjunarliðið.

Byrjunarlið FH
1. Gunnar Nielsen (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
4. Pétur Viðarsson
7. Steven Lennon
8. Baldur Sigurðsson
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
16. Guðmundur Kristjánsson
17. Ólafur Karl Finsen
18. Eggert Gunnþór Jónsson
21. Guðmann Þórisson
29. Þórir Jóhann Helgason

Byrjunarlið Víkings
1. Ingvar Jónsson (m)
6. Halldór Smári Sigurðsson (f)
7. Erlingur Agnarsson
10. Óttar Magnús Karlsson
11. Dofri Snorrason
15. Kristall Máni Ingason
21. Kári Árnason
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
23. Nikolaj Hansen
28. Halldór Jón Sigurður Þórðarson
77. Kwame Quee

Leikir dagsins
16:30 FH - Víkingur
16:30 ÍA - Valur
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner