Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. september 2022 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Allegri biður leikmenn um að skemma ekki landsleikjahléið með tapi
Mynd: EPA

Ítalska stórveldið Juventus hefur ekki farið sérlega vel af stað á nýju tímabili og tapaði heimaleik gegn Benfica í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í miðri viku.


Lærisveinar Massimiliano Allegri eru heppnir að vera komnir með tíu stig eftir sex umferðir þar sem frammistaða liðsins inni á vellinum hefur verið langt frá því að vera sannfærandi.

Fjölmiðlar á Ítalíu telja þjálfarastarf Allegri hjá Juve vera í hættu eftir ófullnægjandi byrjun á tímabilinu. Allegri var spurður út í þessar sögusagnir og segist hissa á því að starfið hans sé talið í hættu eftir það sem hann kallar 'einn slæman leik'.

„Ég fylgist ekki með svona sögusögnum. Er verið að reka Allegri? Einn slæmur leikur og þá er starfið hans Allegri í hættu samkvæmt fjölmiðlum. Það er fyndið," svaraði Allegri.

„Ég er bjartsýnn fyrir framhaldinu. Ég sagði strákunum að eyðileggja ekki landsleikjahléið fyrir mér með tapi. Ég þarf að ná smá slökun."

Juve endaði í fjórða sæti Serie A deildarinnar á síðustu leiktíð og náði þannig Meistaradeildarsæti. Liðið er þó án stiga eftir tvær fyrstu umferðirnar í riðlakeppninni.


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 32 26 5 1 77 17 +60 83
2 Milan 32 21 6 5 63 37 +26 69
3 Juventus 32 18 9 5 45 24 +21 63
4 Bologna 32 16 11 5 45 25 +20 59
5 Roma 31 16 7 8 56 35 +21 55
6 Atalanta 31 15 6 10 57 36 +21 51
7 Lazio 33 15 5 13 41 35 +6 50
8 Napoli 32 13 10 9 50 40 +10 49
9 Torino 32 11 12 9 31 29 +2 45
10 Fiorentina 31 12 8 11 43 36 +7 44
11 Monza 32 11 10 11 34 41 -7 43
12 Genoa 33 9 13 11 35 39 -4 40
13 Lecce 32 7 11 14 27 48 -21 32
14 Cagliari 32 7 10 15 34 54 -20 31
15 Verona 32 6 10 16 30 44 -14 28
16 Udinese 31 4 16 11 30 47 -17 28
17 Empoli 32 7 7 18 25 48 -23 28
18 Frosinone 32 6 9 17 40 63 -23 27
19 Sassuolo 32 6 8 18 39 62 -23 26
20 Salernitana 32 2 9 21 26 68 -42 15
Athugasemdir
banner
banner