Kevin de Bruyne var stórkostlegur í 3-0 sigri Manchester City gegn Wolves í dag. Hann skoraði ekki en lagði upp tvö mörk.
Hann er kominn með 92 stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni og jafnaði þar með Steven Gerrard fyrrum leikmann Liverpool sem var með 92 stoðsendingar í 504 leikjum.
De Bruyne náði þessum áfanga í margfallt fleiri leikjum þar sem hann hefur aðeins spilað 217 leiki í úrvalsdeildinni.
De Bruyne er í 7. sæti yfir flestar stoðsendingar í úrvalsdeildinni en Ryan Giggs fyrrum leikmaður Manchester United er á toppnum með 162 stoðsendingar.
Athugasemdir