Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. september 2022 09:50
Fótbolti.net
Landsliðsvalið, Besta og enski á X977 í dag
Arnar Þór Viðarsson.
Arnar Þór Viðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í fótboltanum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Þátturinn er alla laugardaga milli 12 og 14.

Í þættinum verður farið yfir landsliðsvalið og líklegt byrjunarlið gegn Albaníu ef sá leikur endar sem úrslitaleikur um sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar.

Það er nóg að ræða. U21 liðið er að fara í umspilsleiki gegn Tékklandi og síðasta umferðin fyrir tvískiptingu Bestu deildarinnar er framundan.

Í seinni hluta þáttarins verður heyrt í fréttariturum Fótbolta.net á völlum Bestu deildarinnar og Gunnar Ormslev kemur með skýrslu úr leik Wolves og Manchester City sem er hádegisleikurinn í enska.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner