Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 17. október 2018 15:00
Elvar Geir Magnússon
Evra: Sir Alex dansaði þegar ég var plötusnúður
Evra var sigursæll á Old Trafford.
Evra var sigursæll á Old Trafford.
Mynd: Getty Images
Patrice Evra segist hafa notið mikilla vinsælda þegar hann sá um tónlistina í klefanum hjá Manchester United. Hann segir að Sir Alex Ferguson hafi meira að segja dansað.

Frakkinn lék fyrir United 2006-2014

Ashley Young sér í dag um tónlistina í klefa United og var að bæta inn nýjum lögum á lista sinn. Hann bað um uppástungur í gegnum Instagram.

„Ég sé að það er líka verið að reyna að fylla mitt skarð utan vallar! Bróðir, meira að segja Fergie dansaði þegar ég var plötusnúður. En þú getur ekki verið verri plötusnúður en Rio Ferdinand svo þetta er í góðum höndum," svaraði Evra.

Evra fagnaði fimm Englandsmeistaratitlum með United, einum Meistaradeildartitli og þremur deildabikurum.
Athugasemdir
banner
banner
banner