Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 17. október 2018 12:26
Elvar Geir Magnússon
Hvernig Mourinho getur sloppið við að vera í banni gegn Chelsea
Mourinho gæti fengið hliðarlínubann.
Mourinho gæti fengið hliðarlínubann.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, gæti verið dæmdur í leikbann eftir að hafa fengið ákæru frá enska knattspyrnusambandinu.

Hann fékk ákæruna vegna ummæla sem hann lét út úr sér fyrir framan sjónvarpsmyndavél eftir síðasta leik. Enska knattspyrnusambandið fékk varalesara til að komast að því hvað Mourinho sagði og þóttu ummælin fara yfir strikið.

Mirror segir að Mourinho hafi sagt: 'fodas filhos de puta' sem blaðið þýðir sem 'fuck off sons of bitches'.

Agadómstóll mun dæma um hvort Mourinho fái refsingu fyrir ummælin. Síðustu ár hefur Mourinho fengið góðan fjölda af ákærum frá enska sambandinu og það eykur líkurnar á að hann fái refsingu að þessu sinni.

Mourinho hefur tíma til klukkan 18 á föstudagskvöld til að svara ákærunni en hann gæti verið í hliðarlínubanni þegar Manchester United mætir Chelsea í hádegisleik enska boltans á laugardag.

Ef hann svarar ákærunni er þó ljóst að dómnum verður frestað og hann getur stýrt sínum mönnum frá hliðarlínunni gegn Chelsea.

Ef hann yrði þá dæmdur í bann þá tæki hann það út í leik gegn Everton.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner