Liverpool hefur staðfest að Sadio Mane hafi í dag farið í aðgerð á hendi vegna meiðsla sem hann hlaut í landsliðsverkefni með Senegal.
Mane puttabrotnaði á æfingu.
Sagt er að læknateymi Liverpool hafi verið á staðnum þegar aðgerðin var framkvæmd og að hún hafi heppnast vel.
Mane puttabrotnaði á æfingu.
Sagt er að læknateymi Liverpool hafi verið á staðnum þegar aðgerðin var framkvæmd og að hún hafi heppnast vel.
Mane verður undir eftirliti læknateymisins næstu daga en Liverpool á leik gegn Huddersfield á laugardag. Ekki kemur fram í frétt Liverpool hversu góðar líkur séu á að hann spili þann leik en talið er að hann muni missa af honum.
Liverpool er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar ásamt Manchester City og Chelsea.
Sjá einnig:
Keita fór meiddur af velli
Athugasemdir