Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 17. október 2018 19:01
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin: Wolfsburg rúllaði yfir Atletico
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sara Björg Gunnarsdóttir lék allan leikinn sem djúpur miðjumaður er Wolfsburg skoraði fjögur gegn Atletico Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildar kvenna.

Staðan var markalaus í hálfleik en Pernille Harder braut ísinn á upphafsmínútu síðari hálfleiks, skömmu áður en Ewa Pajor tvöfaldaði forystuna.

Caroline Hansen gerði þriðja mark Wolfsburg áður en Harder fullkomnaði 4-0 stórsigur.

Sigríður Lára Garðarsdóttir sat þá á bekknum er Lilleström gerði jafntefli við Bröndby.

Wolfsburg 4 - 0 Atletico Madrid
1-0 P. Harder ('46)
2-0 E. Pajor ('49)
3-0 C. Hansen ('61)
4-0 P. Harder ('67)

LSK Kvinner 1 - 1 Bröndby
1-0 G. Reiten ('30)
1-1 E. Henriksen ('35)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner