Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 17. október 2018 13:10
Elvar Geir Magnússon
Neymar sagður þrá að komast aftur til Barcelona
Neymar er ekki ánægður með lífið í París.
Neymar er ekki ánægður með lífið í París.
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Neymar sér eftir þeirri ákvörðun að hafa yfirgefið Barcelona og farið til PSG. Spænska blaðið Mundo Deportivo segir að Neymar hafi oft sagt Barcelona að hann vilji snúa aftur.

Sagt er að hann þrái að fara aftur til Barcelona eftir þetta tímabil og sakni meðal annars Lionel Messi, Luis Suarez og Ivan Rakitic.

Sagt er að Neymar eigi erfitt með að gíra sig í leiki PSG í frönsku deildinni og að hann líti enn á Barcelona sem sitt félag.

Neymar var keyptur fyrir um 198 milljónir til PSG og á sínum tíma voru forráðamenn Barcelona pirraðir yfir því hvernig Neymar þrýsti sölunni í gegn.

En öll sár gróa á endanum og Barcelona hefur áhuga á að endurheimta Neymar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner