Jean-Philippe Gbamin, leikmaður Everton á Englandi, fór í aðra aðgerð á þriðjudag en hann hefur verið að glíma við meiðsli framan á læri frá því í ágúst.
Gbamin var keyptur til Everton frá Mainz fyrir 25 milljónir punda í sumar en hann átti að leysa Idrissa Gueye af hólmi sem var seldur til Paris Saint-Germain.
Gbamin var búinn að spila tvo leiki áður en hann meiddist framan á læri og gekkst þá undir aðgerð.
Hann var byrjaður í endurhæfingu og gekk vel áður en hann meiddist aftur og fór hann því aftur undir hnífinn á þriðjudag.
Everton sendi frá sér tilkynningu en ekki er vitað hvenær hann á að snúa aftur á völlinn.
Athugasemdir