Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 17. október 2020 17:57
Victor Pálsson
Byrjunarlið Newcastle og Man Utd: Pogba á bekknum
Mynd: Getty Images
Það styttist í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en flautað er til leiks á St. James' Park nú klukkan 19:00.

Newcastle og Manchester United eigast þá við í fimmtu umferð deildarinnar og má búast við spennandi viðureign.

Man Utd hefur byrjað tímabilið ansi illa og er með þrjú stig eftir þó aðeins þrjá leiki. Newcastle er með sjö eftir fjóra.

Athygli vekur að miðjumaðurinn Paul Pogba er á bekknum í dag og situr þar ásamt nýja bakverðinum Alex Telles.

Hér má sjá byrjunarlið kvöldsins.

Newcastle: Darlow, Krafth, Fernandez, Lascelles, Lewis, Hayden, Shelvey, Hendrick, Joelinton, Saint-Maximin, Wilson

Varamenn: Gillespie, Schar, Carroll, Manquillo, Fraser, Murphy, Almiron

--------------

Man United: De Gea, Wan-Bissaka, Lindelof, Maguire, Shaw, McTominay, Fred, Mata, Fernandes, James, Rashford

Varamenn: Henderson, Telles, Bailly, Matic, Pogba, Van de Beek, Ighalo

Athugasemdir
banner
banner
banner