Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 17. nóvember 2020 16:06
Magnús Már Einarsson
Chilwell tæpur fyrir leikinn við Ísland
Icelandair
Mynd: Getty Images
Óvíst er hvort Ben Chilwell, vinstri bakvörður Chelsea, verði með í leiknum gegn Íslandi í Þjóðadeildinni á Wembley annað kvöld.

Chilwell meiddist á baki gegn Belgum um helgina og tvísýnt er með þátttöku hans.

„Við þurfum að fylgjast áfram með Ben Chilwell. Hann er meðhöndlun eftir bakmeiðsli sem hann varð fyrir um helgina. Allir aðrir kláruðu æfinguna í dag án vandræða," sagði Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, á fréttamannafundi í dag.

Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Englandi undanfarið en Joe Gomez, James Ward-Prowse, Trent Alexander-Arnold, Jordan Henderson og Raheem Sterling eru allir fjarverandi.

Sjá einnig:
Líklegt byrjunarlið Englands gegn Íslandi - Margir fjarverandi
Athugasemdir
banner
banner