Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 17. nóvember 2021 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alves sagður fá 150 krónur á mánuði - Búinn að velja númer
Góðir vinir; Iniesta og Alves.
Góðir vinir; Iniesta og Alves.
Mynd: EPA
Dani Alves er mættur aftur til Barcelona eftir átta ára fjarveru frá félaginu.

Brasilíumaðurinn lék með Barcelona frá 2008 til 2016 við góðan orðstír. Alves, sem er 38 ára, stökk á tækifærið að fara aftur til Barcelona.

Barcelona á í miklum fjárhagsvandræðum en - ef marka má The Sun - þá mun samningur hans ekki valda félaginu miklum vandræðum. Alves er vel staddur fjárhagslega eftir langan feril á hæsta stigi leiksins og segir sagan að hann muni aðeins þiggja eina evru á mánuði fyrir það að spila fyrir Barcelona. Það eru 150 íslenskar krónur.

Alves, sem getur ekki byrjað að spila fyrir félagið fyrr í janúar, er búinn að velja sér treyjunúmer. Hann ætlar að vera númer átta. Andres Iniesta var með það númer á bakinu lengi vel hjá Barcelona. Iniesta er fyrrum liðsfélagi Alves og er hann goðsögn hjá félaginu.

Alves spilaði alltaf sem hægri bakvörður er hann var fyrst hjá Barcelona en hefur síðustu ár mikið spilað á miðjunni. Þetta númer gæti gefið vísbendingu um að hann muni spila á miðsvæðinu fyrir Börsunga að þessu sinni.

Sá brasilíski kemur inn með mikla þekkingu og mikið sigurhugarfar í lið Barcelona. Eitthvað sem félagið þarf á að halda á þessari stundu.
Athugasemdir
banner