Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 17. nóvember 2021 12:18
Elvar Geir Magnússon
Auknar líkur taldar á að Zidane sé klár í Man Utd
Zinedine Zidane.
Zinedine Zidane.
Mynd: Getty Images
Sagt er að Real Madrid goðsögnin Zinedine Zidane sé orðinn spenntari fyir því að taka við stjórn Manchester United. Talið er að sæti Ole Gunnar Solskjær sé heitt.

Zidane þjálfaði Cristiano Ronaldo og Raphael Varane leikmenn Manchester United hjá Real Madrid.

Zidane hefur um nokkurt skeið verið orðaður við United og Record Sport segir að auknar líkur séu á því að hann verði næsti stjóri á Old Trafford.

Frakkinn hefur verið án starfs síðan í maí en hann hefur einnig verið í umræðunni sem næsti landsliðsþjálfari Frakklands þegar Didier Deschamps stígur frá borði.
Athugasemdir
banner