Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. nóvember 2021 19:00
Brynjar Ingi Erluson
„Desember er mánuður draumanna"
Paul Pogba gæti yfirgefið Manchester United næsta sumar
Paul Pogba gæti yfirgefið Manchester United næsta sumar
Mynd: EPA
Mino Raiola, umboðsmaður Paul Pogba hjá Manchester United, segir að desembermánuður sé mánuður draumanna og gefur þar í skyn að leikmaðurinn gæti verið á förum næsta sumar.

Pogba verður samningslaus næsta sumar og virðist ekki útlit fyrir að hann framlengi við United.

Barcelona. Juventus og Real Madrid eru öll sögð í baráttunni um Pogba en Raiola vildi ekki tjá sig mikið um framtíð hans en lét þó nokkur orð falla.

„Desember er mánuður draumanna og ég get ekki komið í veg fyrir að fólk láti sig dreyma, en það er betra að tala ekki um Paul. Ef fyrrum leikmenn Man Utd sleppa því að tala um mig og Paul þá missa þeir líklega vinnuna," sagði Raiola.

„Það er of snemmt að tala um samningamálin hjá Paul Pogba. Sjáum hvað gerist en eins og ég sagði þá get ég ekki komið í veg fyrir að fólk láti sig dreyma," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner