Sam Kerr, sem er ein besta fótboltakona í heimi, hefur skrifað undir nýjan samning við Chelsea á Englandi.
Kerr, sem er 28 ára, hefur skorað 39 mörk í 47 leikjum fyrir Chelsea - frábærar tölur - og verður allavega hjá félaginu til 2024 ef staðið verður við nýja samninginn.
Hin ástralska Kerr gekk í raðir Chelsea fyrir tveimur árum og hefur hjálpað liðinu að vinna ensku úrvalsdeildina tvisvar.
„Mér líður mjög vel hérna. Ég tel að félagið gefi mér öll möguleg tækifæri til að ná árangri sem leikmaður," sagði Kerr eftir undirskrift.
Kerr er magnaður sóknarmaður og mun klárlega hjálpa Chelsea í því að vera eitt besta lið í heimi áfram.
Athugasemdir