Antoine Griezmann, sóknarmaður Atletico Madrid, fékk beint rautt spjald fyrir háskalegt brot á Roberto Firmino í fyrri leiknum gegn Liverpool í Meistaradeildinni.
Hann fór með takkana hátt og í andlit Firmino sem varð til þess að hann var rekinn af velli.
Hann fór með takkana hátt og í andlit Firmino sem varð til þess að hann var rekinn af velli.
UEFA tilkynnti í dag að Griezmann fengi tveggja leikja bann.
Hann tók út bann í seinni leiknum gegn Liverpool og verður einnig í banni í komandi leik gegn AC Milan.
Varnarmaðurinn Felipe verður einnig í banni gegn Milan en hann fékk rautt í 2-0 tapinu í Liverpoolborg.
Liverpool er á toppi riðilsins með 12 stig, Porto er með 5 stig, Atletico Madrid 4 og Milan aðeins 1 stig.
Cabezazo de Firmino al botín de Griezmann pic.twitter.com/TmKBFjLvQ2
— Mejores Patadas (@mejorespatadas1) October 20, 2021
Athugasemdir