Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 17. nóvember 2021 16:00
Elvar Geir Magnússon
Godsamskipti
Mynd: EPA
Klæðaburður Dani Alves þegar endurkoma hans var kynnt fyrir stuðningsmönnum Barcelona á Nývangi í dag vakti athygli.

Þessi 38 ára Brasilíumaður snýr aftur eftir fimm ára fjarveru til að vinna undir Xavi. Hann fær keppnisleyfi í janúar en mun æfa af krafti þangað til.

Alves var klæddur í rúllukragapeysu og í jakkafatajakka en það stakk í stúf að hann var í Flip-Flop sandölum. Þú getur tekið manninn úr Brasilíu en ekki Brasilíu úr manninum.

„Það er strax orðinn betri andi í klefanum með minni komu!" sagði Alves léttur þegar hann var kynntur.

Þetta og meira í Twitter pakka dagsins.






Athugasemdir
banner
banner
banner