Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. nóvember 2022 10:17
Elvar Geir Magnússon
Maddison æfir ekki með liðinu
James Maddison glímir við hnémeiðsli.
James Maddison glímir við hnémeiðsli.
Mynd: Getty Images
James Maddison æfir ekki með enska landsliðinu í dag en í þessum skrifuðu orðum stendur yfir æfing í Katar.

Enskir fjölmiðlar greina frá því að Maddison, sem hefur verið frábær með Leicester á tímabilinu, glími við smávægileg hnémeiðsli og verið sé að stýra álaginu á honum.

Hinir 25 af 26 manna leikmannahópi Englands taka þátt í æfingunni sem fer fram í 33 gráðu hita.

England mætir Íran á mánudag og mun svo leika gegn Bandaríkjunum og Wales.


Athugasemdir
banner
banner
banner