Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 17. desember 2018 16:30
Magnús Már Einarsson
Guardiola nær ekki að breyta miklu fyrir deildabikarinn
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segist ekki geta gert margar breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn Leicester í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins annað kvöld.

David Silva, Benjamin Mendy og Claudio Bravo eru frá keppni en Sergio Aguero er að koma til baka eftir meiðsli á nára.

Guardiola reiknar ekki með alltof mörgum breytingum gegn Leicester frá því í sigrinum á Everton á laugardaginn.

„Vandamálið er að við höfum ekki marga leikmenn til að velja úr," sagði Guardiola.

„Við erum með marga leikmenn meidda. Sumir leikmenn sem spiluðu í síðasta leik þurfa að spila aftur (gegn Leicester)."
Athugasemdir
banner
banner
banner