Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 17. desember 2018 12:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho líklegastur til að vera rekinn
Mynd: Getty Images
Eftir tap Manchester United gegn Liverpool í gær þykir Jose Mourinho langlíklegastur til að vera næsti knattspyrnustjóri sem fær að taka pokann sinn í ensku úrvalsdeildinni.

Samkvæmt veðbankanum Ladbrokes er stuðullinn 1,75 á að Mourinho verði næsti stjóri sem verður rekinn. Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace, er í næstheitasta sætinu og Sean Dyche stjóri Burnley kemur þar á eftir.

Samkvæmt frétt The Guardian í dag er Mourinho þó ennþá öruggur í starfi og ekkert sem bendir til þess að hann missi starfið á næstunni.

Stuðlarnir hjá Ladbrokes
Jose Mourinho – 1,75
Roy Hodgson – 5
Sean Dyche – 10
Rafa Benitez – 12
David Wagner – 16
Ralph Hassenhuttl – 33
Marco Silva – 40
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner