Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 17. desember 2018 21:19
Ívan Guðjón Baldursson
Ndombele ekki falur í janúar - Eftirsóttur á Englandi
Mynd: Getty Images
Franski miðjumaðurinn Tanguy Ndombele er eftirsóttur af Manchester City, Manchester United og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.

Talið var líklegt að hann yrði seldur fyrir rétt verð í janúar en heimildarmaður Sky Sports segir leikmanninn ekki vilja yfirgefa Lyon strax.

Ndombele gerði vel á láni hjá Lyon á síðasta tímabili og var keyptur til félagsins í sumar. Hann er lykilmaður á miðjunni og vill sjá hversu langt hann kemst með Lyon á tímabilinu áður en hann tekur ákvörðun um framtíðina.

Lyon komst upp úr riðlinum í Meistaradeildinni eftir sigur á útivelli gegn Man City og mætir Barcelona í 16-liða úrslitum.

Ndombele á 11 leiki að baki fyrir U21 landslið Frakklands og 4 leiki fyrir A-liðið.
Athugasemdir
banner