Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 17. desember 2018 14:00
Magnús Már Einarsson
Shaqiri ekki hissa á að sjá Liverpool eiga 36 skot gegn Man Utd
Mynd: Getty Images
Xherdan Shaqiri var hetja Liverpool í 3-1 sigri á erkifjendunum í Manchester United í gær en hann kom inn á sem varamaður og tryggði sigurinn með tveimur mörkum.

Liverpool átti samtals 36 markskot í leiknum á móti sex skotum Manchester United.

Allir útileikmenn Liverpool áttu meðal annars marktilraun í leiknum.

„Ég var ekki hissa á þessu," sagði Shaqiri aðspurður út í tölfræðina eftir leik.

„Við vitum að Manchester United spilar varnarsinnað. Þeir halda boltanum ekki mikið og það var mikilvægt að spila með háa ákefð, pressa þá hátt, ná seinni boltunum og spila hratt fram á við til að skapa færi."
Athugasemdir
banner
banner