Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 17. desember 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Skemmtileg aukaspyrna virkaði fyrir Dortmund
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund fékk Werder Bremen í heimsókn um helgina í þýsku úrvalsdeildinni og var markamaskínan Paco Alcacer búinn að koma heimamönnum yfir eftir 20 mínútur.

Alcacer skoraði með skalla eftir glæsilega fyrirgjöf frá Raphael Guerreiro sem plataði alla leikmenn Werder þegar hann tókst aukaspyrnuna sína.

Guerreiro, sem er örvfættur, þóttist taka aukaspyrnuna en hljóp yfir boltann og gerði Marco Reus sig líklegan til að spyrna með hægri. Reus ætlaði þó aldrei að spyrna, en enginn var að pæla í Guerreiro sem tók lúmskt tilhlaup úr öfugri átt og náði að smella fullkominni fyrirgjöf beint á kollinn á Paco.

Reus tvöfaldaði forystu Dortmund sjö mínútum síðar og minnkaði Max Kruse muninn fyrir leikhlé en meira var ekki skorað og dýrmætur sigur Dortmund staðreynd.




Athugasemdir
banner
banner